Alþjóðlegt ár stjörnufræðinnar 2009

Undur Alheimsins - Alþjóðlegt ár stjörnufræðinnar 2009 Á ári stjörnufræðinnar er haldið upp á það, að liðin verða 400 ár frá einum mikilvægasta atburði í sögu raunvísinda, þegar Galíleó Galíleí beitti sjónauka fyrstur manna til rannsókna á himingeimnum. Fyrr á árinu 1609 hafði Jóhannes Kepler gefið út bókina Astronomia nova (Ný stjörnufræði) þar sem hann setur fram tvö fyrstu lögmál sín um hreyfingar reikistjarna í sólkerfinu. Verk þeirra Galíleós og Keplers urðu upphafið að sögu stórkostlegra uppgötvana í stjörnufræði og komu af stað vísindabyltingu sem hafði djúpstæð áhrif á hugmyndir manna um alheiminn.

Alþjóðlegt ár stjörnufræðinnar 2009 er fyrst og fremst hugsað sem vettvangur fyrir hinn almenna jarðarbúa þar sem áhersla er lögð á persónulega upplifun og ánægjuna við það að deila með öðrum þekkingu á alheimi og stöðu mannsins í honum. Þá er lögð áhersla á mikilvægi vísindalegrar hugsunar með það að leiðarljósi að hún sé ómetanleg auðlind fyrir allt mannkyn.

Vefsíða þessi er á vegum íslensku landsnefndarinnar sem hefur umsjón með ári stjörnufræðinnar hér á landi. Birtar verða fréttir og upplýsingar um atburði ársins og boðið uppá margskonar fræðslu um stjarnvísindi.

Fréttir af árinu

Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness, 600279-0339, Valhúsaskóla v. Skólabraut, 170 Seltjarnarnes
Stjarnvísindafélag Íslands (The Icelandic Astronomical Society), Dunhaga 3, 107 Reykjavík