Alþjóðlegt ár stjörnufræðinnar 2009

Fréttatilkynning 20. desember 2007

Í gær, 19. desember 2007, tilkynnti allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna að árið 2009 yrði alþjóðlegt ár stjörnufræðinnar. Það var heimaland Galíleós Galíleís, Ítalía, sem lagði tillöguna fram með fullu samþykki undirbúningsnefndar allsherjarþingsins. Frumkvæðið að Alþjóðlegu ári stjörnufræðinnar 2009 (e. The International Year of Astronomy 2009: IYA2009) áttu Alþjóðasamband stjarnvísindamanna (the International Astronomical Union: IAU) og UNESCO.

Alþjóðlegt ár stjörnufræðinnar 2009Með alþjóðaárinu IYA2009 er haldið upp á einn mikilvægasta atburð í sögu raunvísinda, þegar Galíleó beitti sjónauka fyrstur manna til rannsókna í stjörnufræði. Það var upphafið að 400 ára sögu stórkostlegra uppgötvana í stjörnufræði og atburðurinn kom af stað vísindabyltingu sem hafði djúpstæð áhrif á hugmyndir manna um alheiminn.

Í dag er sjónaukum í geimnum og á jörðu niðri beitt allan sólarhringinn til rannsókna á alheimi á öllum sviðum geislunar. Forseti Alþjóðasambands stjarnvísindamanna, Catherine Cesarsky, fullyrðir að „Alþjóðlegt ár stjörnufræðinnar 2009 veiti öllum þjóðum heims tækifæri til að taka þátt í þeirri öru þróun vísinda og tækni sem nú á sér stað.

Alþjóðaárið IYA2009 er friðsamleg samvinna þjóða þar sem leitað er svara við spurningunni um rætur okkar og upphaf í alheimi, sameiginlega arfleið allra jarðarbúa. Stjarnvísindin eru fulltrúi mörg þúsund ára samvinnu, óháð landamærum, kynferði, aldri, menningu og kynþáttum, í fullu samræmi við grundvallarsáttmála Sameinuðu þjóðanna. Í þeim skilningi er stjörnufræði gott dæmi um það hvernig raunvísindin geta stuðlað að alþjóðasátt og samvinnu. Einar H. Guðmundsson prófessor í stjarneðlisfræði við Háskóla Íslands er formaður íslensku IYA2009 landsnefndarinnar og tengill hennar við alþjóðasambandið. Hann segir af þessu tilefni: „Hér á landi verður haldið upp á Alþjóðlegt ár stjörnufræðinnar 2009 með margvíslegum hætti. Meðal annars er fyrirhugað að bjóða almenningi að hlýða á fyrirlestra um það sem efst er á baugi í stjarnvísindum nútímans. Mönnum mun einnig gefast kostur á fræðslu um stjörnusjónauka og þátttöku í stjörnuteitum þar sem stjörnuhimininn verður skoðaður. Þá er verið að vinna úr hugmyndum um samvinnu stjarnvísindamanna og stjörnuáhugamanna við kennara og nemendur í skólum landsins. Einnig er ætlunin að fræða landsmenn um sögu stjarnvísinda á Íslandi. Það er mikið ánægjuefni að Ísland skuli hafa stutt þessa tillögu á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna og þannig tekið undir það viðhorf að raunvísindi séu einn af hornsteinum nútíma samfélags.

Alþjóðaárið IYA2009 er einkum hugsað sem vettvangur fyrir hinn almenna jarðarbúa þar sem áhersla er lögð á persónulega upplifun og ánægjuna við það að deila með öðrum þekkingu á alheimi og stöðu okkar í honum. Þá er lögð áhersla á mikilvægi vísindalegrar hugsunar. Hvetjandi áhrifamáttur stjarnvísinda er ómetanleg auðlind fyrir allt mannkyn.

Frekari upplýsingar um Alþjóðlegt ár stjörnufræðinnar 2009 er að finna á vefsíðunni http://www.astronomy2009.org. Fréttatilkynninguna í heild sinni er að finna hér.

Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness, 600279-0339, Valhúsaskóla v. Skólabraut, 170 Seltjarnarnes
Stjarnvísindafélag Íslands (The Icelandic Astronomical Society), Dunhaga 3, 107 Reykjavík