Sverrir Guðmundsson/22. ágúst 2010
Stellarium er stjörnufræðiforrit sem er til á fjölmörgum tungumálum, þar á meðal íslensku. Í forritinu er hægt að stilla inn tíma og skoða stjörnuhimininn hvaðan sem er frá jörðinni (og öðrum reikistjörnum í sólkerfinu!). Forritið er ókeypis og virkar á öllum helstu stýrikerfum: Windows, Mac og Linux.

Við erum búin að setja upp vefsíðu með íslenskum innsetningu fyrir Stellarium, ásamt leiðbeiningum og fleiri myndum úr forritinu: http://stellarium.astro.is
Með Stellarium kemur ein íslensk panorama-landslagsmynd úr Vonarskarði sem Sveinn í Felli setti saman fyrir forritið. Við hvetjum áhugasama til þess að setja saman panorama-myndir fyrir íslensku útgáfuna og senda okkur. Nánari upplýsingar er að finna á íslensku Stellarium vefsíðunni.

Íslensk landslagsmynd úr Vonarskarði.
Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness - 600279-0339 - Valhúsaskóla v. Skólabraut, 170 Seltjarnarnes - ssfs [hjá] astro.is - mail.astro.is