Námskeið í stjörnuskoðun

Grétar Örn Ómarsson/24. júní 2007

Aðstaða

Félagið hefur yfir að ráða aðstöðu í Valhúsaskóla og hefur það nánast verið samofið skólanum frá byggingu hans árið 1974.

Mynd af Valhúsaskóla
Mynd af Valhúsaskóla

Saga aðstöðunnar
Í árdaga félagsins var aðstaða til stjörnuskoðunarfrá skólanum freka frumstæð hinsvegar voru góðar aðstæður til fundarhalds innan skólans. Ljóst var að félagið þarfnaðist varanlegrar aðstöðu til stjörnuskoðunar, án truflunar frá veðurguðunum. Einnig þurfti að vernda C14 sjónauka skólans, sem síðar varð aðalsjónauki félagsins, en hann var geymdur undir tunnu á einum turninum. Í framhaldi af þessu var ákveðið að athuga með styrkveitingu til kaupa á 12,6 feta hvolfþaki sem yrði staðsett á einum af 4 turnum Valhúsaskóla. Þáverandi stjórn sendi Menntamálaráðuneytinu bréf þar sem óskað var eftir styrk til kaupa á ASHDOME hvolfþaki. Félaginu varð að ósk sinni árið 1976 og eignaðist hvolfþak, tveimur árum eftir stofnun skólans. Árið 1977 var hvolfið reist en hvolfþakið markaði byltingu í notkun sjónaukans. „Þetta er allt annað líf“ sögðu menn. Einnig er vert að geta þess að þáverandi flugfélag Íslendinga, Flugleiðir, flutti hvolfþakið til Íslands félaginu að kostnaðarlausu.

Árið 2006 var hvolfið lakkað grátt að utan og svart að innan en það var farið að láta á sjá eftir 30 ára barning við saltið sem berst með vindi upp á land. Á Seltjarnarnesi geta verið allsterkir vindar sem leika um hvolfið þar sem það stendur hátt yfir byggð. Hvolfið er úr galvaniseruðu stáli og nokkuð sterkt enda eru ASHDOME hvolf þekkt fyrir góða endingu og styrk á fjallstindum víðsvegar um heiminn.

Í gegnum tíðina hefur hvolfið hýst alla aðalsjónauka félagsins og er núverandi sjónauki á mörkum þess að komast fyrir í hvolfinu. Hvolfinu er að öllu leyti stýrt með handafli og hefur það verið draumur manna að geta sett drifbúnað á hvolfið. Það myndi auðvelda mönnum notkun þess ef það fylgdi hreyfingu sjónaukans.

Aðstaðan í dag
Aðstöðu félagsins má skipta í þrennt. Efst er ASHDOME hvolfþakið þar sem aðalsjónauki félagsins er staðsettur.

ASHDOME hvolfþak
ASHDOME hvolfþak

Aðalrými félagsaðstöðunnar er undir gólfi hvolfsins og er þar að finna tölvu, til að varfa á netinu og skoða hin ýmsu stjörnuskoðunarforrit svo sem StarryNight og SkyMap Pro, og aukahluti fyrir aðalsjónaukann. Þar er einnig sjónvarp, myndbandstæki og DVD spilari ásamt borði og stólum. Í rýminu er ennig þráðlaus nettenging.

Mynd aðalfélagsrýminu undir hvolfinu - tölva
Mynd aðalfélagsrýminu undir hvolfinu - tölva

Mynd aðalfélagsrýminu undir hvolfinu - sjónvarp, myndbandstæki og DVD spilari
Mynd aðalfélagsrýminu undir hvolfinu - sjónvarp, myndbandstæki og DVD spilari

Mynd aðalfélagsrýminu undir hvolfinu - borð og stólar
Mynd aðalfélagsrýminu undir hvolfinu - borð og stólar

Á hæðinni fyrir neðan er bókasafn félagsins sem hefur að geyma ýmsar bækur um stjörnufræði og stjörnuskoðun svo og alla árganga af Sky & Telescope. Þar eru einnig vefþjónar félagsins og geymsla.

Bókasafn félagsins
Bókasafn félagsins

Það sem helst hefur hrjáð aðstöðu félagsins er erfið aðkoma þar sem stigar upp í hvolfið eru mjög brattir og varasamir. Lengi hefur staðið til að fá hringstiga alla leið upp í hvolfið. Árið 2005 var arkitekt fenginn til þess að teikna hringstiga alla leið upp í turninn en ekki hefur orðið af þeim framkvæmdum enn, þar sem það er tæknilega erfitt og kostnaðarsamt að koma góðum stiga fyrir. Hinsvegar bliknar sá kostnaður í samanburði við slysahættuna fyrir unga krakka sem þurfa að fara um stigana sem liggja upp í hvolfið í dag.

Hugmynd arkitekts að úrbótum á stjörnuturni
Hugmynd arkitektsins.

Aðstaða til fundarhalds
Félagsfundir eru venjulega haldnir í matsal nemenda Valhúsaskóla, þar sem fundarherbergið undir hvolfinu þykir of lítið fyrir almenna félagsfundi.

Matsalur nemenda í Valhúsaskóla - aðalfundaraðstaða félagsins
Mynd: Grétar Örn Ómarsson.

Matsalurinn er rúmgóður og bjartur og einnig er mögulegt að nota skjávarpa þar þegar þess er þörf, í tengslum við kynningar, myndasýningar og fyrirlestra.

Þróun aðstöðunnar til framtíðar
Skólinn hefur þjónað félaginu dyggilega í þann tíma sem félagið hefur verið starfrækt og kann félagið honum miklar þakkir. Hinsvegar er nauðsynlegt í ljósi þróunar í kringum skólann að þörf er á aðstöðu utan bæjarmarkanna. Ljósmengun hefur vaxið gríðarlega á síðastliðnum árum yfir borginni og er nú búin að skemma staðinn til skoðunar á þokum og daufum stjörnum. Nú verið að skoða mögulegar staðsetningar utan borgarinnar en þar ber helst að nefna Krýsuvík. Þar er myrkur með því besta sem gerist á Suðurlandi. Skólinn mun þó enn gegna mikilvægu hlutverki í framtíð félagsins.

Aðstaðan í Valhúsaskóla hefur verið þungamiðja félagsmanna í gegnum tíðina. Þar hefur mikið verið rætt, skrafað og skoðað í þau 30 ár sem félagið hefur verið við lýði. Félagið stendur nú á tímamótum og með vaxandi áhuga almennings á vísindum verðum við að hugsa lengra fram í tímann og velja félaginu framtíðaraðstöðu á stað eins langt frá ljósmengun og mögulegt er. Krýsuvíkin er því vin í ljósmengunareyðimörkinni og þar sér félagið framtíð sína fyrir sér.

Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness - 600279-0339 - Valhúsaskóla v. Skólabraut, 170 Seltjarnarnes - ssfs [hjá] astro.is - mail.astro.is