Námskeið í stjörnuskoðun

Kristján Þorvaldsson/23. maí 2007

Framtíðaraðstaða

Starfshópur um framtíðaraðstöðu félagsins utan borgarmarkanna var stofnaður á aðalfundi 2007. Fyrst gengdi Þórir Már Jónsson formennsku en undir lok árs 2007 tók Grétar Örn Ómarsson við sem formaður. Á aðalfundi 2008 var umboð starfshópsins endurnýjað og var Óskar Torfi Viggósson skipaður formaður.

Vinna er komin vel af stað. Búið er að skoða nokkra hugsanlega staði og varð Krýsuvík fyrir valinu. Vinna við að fá leyfi og annað tengt framkvæmdinni er komin vel á veg.

Þegar er búið að gera tillögu að einni af þeim byggingum sem félagið hyggst koma sér upp. Teikningar að neðan eru á Acrobat sniði (.pdf) og á Kristján Heiðberg veg og vanda að gerð þeirra.

Útlit húss og hús sem eru á svæðinu

Yfirlitsmynd af svæðinu

Stærri yfirlitsmynd

Kostnaður við að koma upp slíkri aðstöðu er gífurlegur. Félagið tekur við öllum frjálsum framlögum.

  • Reikningsnúmer: 512-4-250210
  • Kennitala: 6002790339
  • Netfang: gjaldkeri [hjá] astro.is

Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness - 600279-0339 - Valhúsaskóla v. Skólabraut, 170 Seltjarnarnes - ssfs [hjá] astro.is - postur.astro.is