Námskeið í stjörnuskoðun

Sævar Helgi Bragason/13. apríl 2007

Sjónaukar

Uppi á þaki Valhúsaskóla er hvolfþak sem hýsir aðalstjörnusjónauka Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness. Hann er Newtonsspegilssjónauki frá fyrirtækinu JMI og er spegill hans 46 cm í þermál. Þetta er stærstu stjörnusjónauki landsins og hafa félagsmenn ótakmarkaðan aðgang að honum.

Félagið á einnig tvo aðra stjörnusjónauka, annars vegar 10 tommu (25 cm) Schmidt-Cassegrain sjónauka frá Meade og hins vegar 14 tommu (35 cm) Schimdt-Cassegrain sjónauka frá Celestron, en það var jafnframt fyrsti sjónauki félagsins.

JMI NGT-18

NGT-18 er 18 tommu Newtonsspegilssjónauki frá bandaríska sjónaukaframleiðandanum Jim’s Mobile Incorporated. Þetta er stærsti og fullkomnasti stjörnusjónauki landsins en bræðurnir og velunnarar félagsins, þeir Ágúst og Sveinn Valfells, gáfu Stjörnuskoðunarfélaginu gripinn. Með þessari höfðinglegu gjöf vildu þeir Ágúst og Sveinn efla áhuga almennings á stjarnvísindum og stjörnuskoðun. Á sama tíma vildu þeir bræður minnast systur sinnar dr. Sigríði Valfells málfræðingi, sem lést haustið 1998, sextug að aldri.

Sigríður Valfells var doktor í málvísindum frá Harvardháskóla og kenndi meðal annars við Washingtonháskóla í Seattle og við Columbiaháskólann í New York.

Sjónaukinn var keyptur í október árið 1998 en var ekki afhentur félaginu formlega fyrr en fjórum árum síðar eða föstudaginn 22. nóvember, 2002. Afhendingin dróst nokkuð þar sem gera þurfti breytingar á turninum í Valhúsaskóla, þar sem sjónaukinn er nú, vegna stærðar hans.

Sjónaukinn hvílir á rafdrifnu pólstilltu stæði svo vel er hægt að mynda með sjónaukanum sé hann rétt stilltur. Vegna þess hve ljósop sjónaukans er stórt er hann frábær í alla sjónskoðun, hvort sem verið er að skoða reikistjörnurnar, daufar stjörnuþokur, þétt tvístirni, tignarlegar kúluþyrpingar eða fjarlægar vetrarbrautir.

Þrátt fyrir ótvíræða kosti þessa frábæra sjónauka er hann heldur illa nýttur staðsetningar sinnar vegna. Ljósmengun frá höfuðborginni hefur vaxið umtalsvert á síðustu árum og nýyfirstaðnar framkvæmdir við Valhúsaskóla hafa gert það að verkum að staðurinn er svo til ónýtur til stjörnuskoðunar. Það er þess vegna markmið félagsins að koma upp varanlegri félagsaðstöðu fyrir utan bæjarmörkin, fjarri allri ljósmengun, svo fólk geti virt fyrir sér stjörnurnar í gegnum sjónaukann án nokkurrar truflunar.

Aðrar upplýsingar:

Tegund: Newtonsspegilssjónauki
Ljósop: 18 tommu (45,72 cm)
Brennivídd: 2000 mm
Brennihlutfall: f/4,5
Birtumörk: 16
Lengd: 203 cm
Breidd: 91 cm
Sjónaukinn vegur: 100 kg

14 tommu Schmidt-Cassegrain frá Celestron

Fyrsti stjörnusjónaukinn sem Stjörnuskoðunarfélagið eignaðist var 14 tommu Schmidt-Cassegrain sjónauki frá bandaríska sjónaukaframleiðandanum Celestron. Sjónaukinn var keyptur og afhentur Valhúsaskóla í mars 1975, fullu ári áður en Stjörnuskoðunarfélagið var stofnað, en sá sem lagði fram fé til kaupa á sjónaukanum var Sigurður Kr. Árnason, húsasmíðameistari og fyrsti ritari félagsins.

C14 var á þessum tíma (og er enn) aðalsjónaukinn sem Celestron framleiðir og var hann um árabil langstærsti stjörnusjónauki landsins. Sjónaukinn gagnaðist félagsmönnum mjög vel í tvo áratugi eða allt þar til Stjörnuskoðunarfélagið festi kaup á tíu tommu sjónauka árið 1995. Á stofnárinu 1976 sást bjart tvístirni í stjörnumerkinu Litlaref og varð það eitt fyrsta verkefni félagsmanna að fylgjast með og skrá breytingar á birtustigi þeirrar stjörnu með hjálp nýja sjónaukans.

Sjónaukinn er appelsínugulur á litinn og situr á rafdrifnu gaffalsstæði en eingöngu er hægt að hreyfa hann handvirkt (m.ö.o. ekki tölvustýrður). Með sjónaukanum fylgdi 8x50 leitarsjónauki, tveggja tommu hornspegill og augngler.

Sjónaukinn hefur látið talsvert á sjá eftir nálega 30 ára notkun og er því miður ekki nothæfur í dag. Stjórn Stjörnuskoðunarfélagsins hyggst þó koma sjónaukanum í fyrra horf þannig að hann verði nothæfur á ný. Áætlað er að endurhúða spegla sjónaukans og leiðréttingarplötuna, lagfæra túbuna og koma honum fyrir á vönduðu þýsku-pólstilltu sjónaukastæði. Þannig mun C14 öðlast nýtt líf hjá félaginu og verða um leið næst stærsti stjörnusjónauki landsins, kjörinn í ljósmyndun og hefðbundna sjónskoðun.

Aðrar upplýsingar:

Tegund: Schmidt-Cassegrain
Ljósop: 14 tommur (35,6 cm)
Brennivídd: 3910mm
Brennihlutfall: f/11
Birtumörk: 15,3

10 tommu Schmidt-Cassegrain frá Meade

Árið 1995 bauðst Stjörnuskoðunarfélaginu að kaupa 10 tommu Schmidt-Cassegrain sjónauka frá Meade. Sjónaukinn var þá fimm ára gamall en í óaðfinnanlegu ástandi og verðið á honum hagstætt. Þáverandi stjórn félagsins mæltist til þess að sjónaukinn skyldi keyptur enda 14 tommu sjónaukinn orðinn gamall og þarfnaðist rækilegs viðhalds. Félagsmenn samþykktu þetta og var sjónaukinn keyptur.

Helsti munurinn á 10 tommu sjónaukanum og 14 tommunni, fyrir utan stærð ljósopsins, var fólginn í brennihlutfalli sjónaukann. Hefðbundnir Schmidt-Cassegrain sjónaukar hafa brennihlutfallið f/10 sem þýðir í grundvallaratriðum það að sjónsviðið er fremur þröngt og lengri lýsingartíma þarf í ljósmyndun. Fjórtán tommu sjónaukinn hafði brennihlutfallið f/11 en nýja tíu tomman f/6,3. Það þýddi að sjónsviðið var meira en helmingi víðara, myndir næstum þrefalt bjartari og lýsingartími fyrir ljósmyndun að minnsta kosti 60% skemmri en fæst með f/10 eða f/11 sjónaukum.

Sjónaukinn var líkt og C14 á rafdrifnu gaffalsstæði en hafði þann kost umfram 14 tommuna að vera tölvustýrður. Í kringum 1990 var þessi sjónauki flaggskip Meade og til í tveimur stærðum, átta og tólf tommum. Með sjónaukanum fylgdi 9x60 leitarsjónauki, 26mm augngler sem gaf 62x stækkun, taska og þrífótur.

Sjónaukanum var skipt út árið 2002 þegar JMI NGT-18 sjónaukinn var gefinn félaginu og tekinn í notkun. Árið 2006 tók stjórn félagsins undir forystu Grétars Arnar Ómarsson, ritara, sjónaukann í gegn og gerði nothæfan að nýju. Sjónaukinn er nú í mjög góðu ásigkomulagi og geta félagsmenn fengið hann að láni hvenær sem er.

Aðrar upplýsingar:

Tegund: Schmidt-Cassegrain
Ljósop: 10 tommur (25 cm)
Brennivídd: 1600mm
Brennihlutfall: f/6,3
Birtumörk: 14,5

Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness - 600279-0339 - Valhúsaskóla v. Skólabraut, 170 Seltjarnarnes - ssfs [hjá] astro.is - postur.astro.is