Sævar Helgi Bragason/22. desember 2008
Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness og Stjörnufræðivefurinn bjóða upp á byrjendanámskeið fyrir þá sem hafa áhuga á stjörnufræði og stjörnuskoðun. Sams konar námskeið hafa verið haldin síðustu misseri við góðar undirtektir þátttakenda.
Námskeiðið stendur yfir í tvö kvöld og fjalla fyrirlesarar bæði um fyrirbæri á næturhimninum og meðferð sjónauka og annars útbúnaðar. Eftir námskeiðið (þegar veður leyfir) verður boðið upp á stjörnuskoðun þar sem þátttakendur eiga kost á því að mæta með eigin stjörnusjónauka.
Dagsetningar: Þriðjudagur 16. febrúar og miðvikudaginn 17. febrúar 2010. Stjörnuskoðun verður þegar veður leyfir (mögulega fimmtudaginn 18. nóvember).
Fyrirkomulag: Dagskráin hefst stundvíslega kl. 20:00 og stendur til kl. 22:30 með stuttu kaffihléi. Húsið opnar kl. 19:50!
Staður: Valhúsaskóli, Seltjarnarnesi (bygging fyrir ofan knattspyrnuvöllinn við Suðurströnd). Gengið er inn um inngang við matsal nemenda á suðurhlið hússins.
Verð: 10.000,- kr. fyrir þá sem standa utan Stjörnuskoðunarfélagsins (11.000,- með skráningu í félagið og árgjaldi fyrsta árið). Námskeiðsgjald fyrir félagsmenn er 8.500, - kr. Ganga verður frá greiðslu innan 10 daga frá skráningu svo að hún sé gild (nánari upplýsingar í tölvupósti að lokinni skráningu).
Greiðsla námskeiðsgjalda: Vinsamlegast greiðið inn á reikning 512-26-100028. Kennitala félagsins er 600279-0339. Best er að senda kvittun með innleggi úr heimabanka á netfangið gjaldkeri[hjá]astro.is með nafni þátttakanda í skýringu.
Aldursmörk: Þessi námskeið miðast við þá sem eru 14 ára og eldri.
Kennarar verða:
Birt með fyrirvara um breytingar.
Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness - 600279-0339 - Valhúsaskóla v. Skólabraut, 170 Seltjarnarnes - ssfs [hjá] astro.is - postur.astro.is