Námskeið í stjörnuskoðun

Sverrir Guðmundsson/09. október 2008

Kennaranámskeið

Næstu námskeið eru fyrirhuguð veturinn 2012-2013.

Ef þú vilt þá geturðu smellt hér og komist á póstlista fyrir kennara þar sem við sendum út upplýsingar um námskeið, stjörnukort, viðburði o.fl. Mjög einfalt er að skrá sig af listanum


Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness og Stjörnufræðivefurinn standa fyrir námskeiðum um stjörnufræði fyrir kennara í leikskólum, grunnskólum og framhaldsskólum.

LÝSING:

Námskeiðið er bæði hugsað til kennslu á Galileósjónaukann og sem yfirlitsnámskeið um stjörnufræði og stjörnuskoðun fyrir leikskóla, grunn- og framhaldsskólakennara. Í fyrri hluta námskeiðsins verður lögð áhersla á verklega kennslu og athuganir. Í seinni hlutanum verður fjallað vítt og breitt um stjörnuskoðun, sólkerfið og alheiminn.

VERÐ:

Námskeiðsgjald er 4.000 kr./5.000 kr. með aðild að Stjörnuskoðunarfélaginu í 1 ár.

Kannið rétt ykkar til endurgreiðslu námskeiðsgjalds hjá KÍ.


DAGSKRÁ Í VALHÚSASKÓLA laugardaginn xxxxxx 2012:

10:30-12:00 – Galileósjónaukinn og stjörnufræðikennsla.

Hádegishlé.

13:00-15:30 – Stjörnuskoðun, sólkerfið og alheimurinn.

 

EFNISÞÆTTIR:

Námskeiðið skiptist í fimm hluta:

  • Galíleósjónaukinn. Sjónaukinn settur saman. Fjallað um aðferðir til að nýta hann við kennslu.
  • Stellarium, netið nýtt til kennslu í stjörnufræði.
  • Almennt um stjörnuskoðun og sjónauka
  • Sólkerfið: tunglið, sólin, loftsteinar.
  • Stjörnur, vetrarbrautir og miklihvellur.

 

KENNARAR VORIÐ 2012:

  • Sverrir Guðmundsson, ritari Stjörnuskoðunarfélagsins og framhaldsnemi í kennslufræði við Menntavísindasvið Háskóla Íslands sem vinnur að lokaverkefni um stjörnufræði á leikskóla.
  • Sævar Helgi Bragason, formaður Stjörnuskoðunarfélagsins og nemi í stjarneðlisfræði við Háskólann í Lundi í Svíþjóð.
  • Tryggvi Kristmar Tryggvason, nemi í eðlisfræði við Háskóla Íslands.


Birt með fyrirvara um breytingar.


Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness - 600279-0339 - Valhúsaskóla v. Skólabraut, 170 Seltjarnarnes - ssfs [hjá] astro.is - mail.astro.is