Námskeið í stjörnuskoðun

Sævar Helgi Bragason/21. febrúar 2010

Krakkanámskeið

 

Næsta krakkanámskeið verður haldið veturinn 2010-2011. Fylgist með hér á astro.is í byrjun september.

 

Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness og Stjörnufræðivefurinn bjóða upp á krakkanámskeið fyrir þá sem hafa áhuga á stjörnufræði og stjörnuskoðun. Sams konar námskeið hefur verið haldið tvo síðustu vetur við góðar undirtektir þátttakenda.

Námskeiðið stendur yfir í tvær og hálfa klukkustund. Eftir námskeiðið (þegar veður leyfir) verður öllum boðið upp á stjörnuskoðun þar sem þátttakendur geta mætt með eigin stjörnusjónauka og fengið leiðbeiningar um notkun hans.

Dagsetningar:
Laugardagur 27. febrúar - 1.-4. bekkur kl. 13:30-16:00
Sunnudagur 28. febrúar - 5.-7. bekkur kl. 11:30-14:00
Farið verður í stjörnuskoðun eftir námskeiðið þegar veður leyfir.

Fyrirkomulag: Dagskráin hefst stundvíslega kl. 11:30/13:30. Húsið opnar 15 mínútum fyrr. Um miðbik námskeiðsins er hlé þar sem boðið verður upp á hressingu.

Staður: Valhúsaskóli, Seltjarnarnesi (bygging fyrir ofan knattspyrnuvöllinn við Suðurströnd). Gengið er inn um inngang við matsal nemenda á suðurhlið hússins.

Verð: 6.000,- kr. fyrir barn og eitt foreldri. Ganga verður frá greiðslu innan 10 daga frá skráningu svo að hún sé gild (nánari upplýsingar í tölvupósti að lokinni skráningu). Innfalið í skráningargjaldi er veglegt tímarit í tilefni af alþjóðlegu ári stjörnufræðinnar.

Greiðsla námskeiðsgjalda: Vinsamlegast greiðið inn á reikning 512-26-100028. Kennitala félagsins er 600279-0339. Best er að senda kvittun með innleggi úr heimabanka á netfangið gjaldkeri[hjá]astro.is með nafni þátttakanda í skýringu.

Aldursmörk: Námskeiðin miðast við börn á aldrinum 6 til 12 ára. Sjá nánar fyrirkomulag.

 

Skráning

 

Birt með fyrirvara um breytingar.

Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness - 600279-0339 - Valhúsaskóla v. Skólabraut, 170 Seltjarnarnes - ssfs [hjá] astro.is - postur.astro.is