forritið
er nú á íslensku í útgáfu 0.10.5
Windows og Mac notendur geta hlaðið niður uppsetningapökkum með íslensku sem sjálfgefnu tungumáli á vefslóðunum efst til hægri. Í uppsetningunni er nú þegar ein íslensk landslagsmynd (Vonarskarð).
Linux notendur geta skoðað leiðbeiningar um uppsetningu forritsins á vefsíðu Stellarium.
wiki
Á Wiki-svæðinu (á ensku) halda notendur og hönnuðir stellarium til haga allri þekkingu á forritinu og þar getur þú lagt þitt að mörkum.
íslenskt landslag
Við erum að safna saman íslenskum landslagsmyndum fyrir Stellarium. Með innsetningunni fylgja fjölmargar landslagsmyndir, þar af ein panorama-landslagsmynd úr Vonarskarði sem Sveinn í Felli setti saman.
- vonarskard.zip
Við hvetjum áhugasama til þess að setja saman panorama myndir frá Íslandi (ásamt undirlagi sem staðið er á) og senda okkur á netfangið ssfs [hjá] astro.is.
Hér eru fimm vefsíður ( [1] [2] [3] [4] [5]) sem fjalla um hvernig hægt er að að búa til panorama-landslagsmyndir fyrir Stellarium.
Setja inn nýjar landslagsmyndir:
Hér er vefsíða með fjölda landslagsmynda fyrir Stellarium.
Til þess að bæta inn nýjum landslagsmyndum á Windows stýrikerfinu þarf að fara í möppuna þar sem forrit eru geymd og velja möppuna Stellarium/landscapes/.
Á OSX þarf fyrst að finna forritið Stellarium sem er oftast er staðsett í Applications-möppunni. Þegar búið er að finna Stellarium þarf að halda inni ctrl-takkanum og smella með músinni á Stellarium-táknmyndina. Velja síðan „Show Package Contents“ af valblaðinu sem kemur upp. Hægt er að bæta möppum með nýjum landslagsmyndum í möppuna Contents/Resources/landscapes.
Á flestum Linux dreifingum er staðsetningin stellarium/landscapes.
hönnuðir
Stjórnandi verkefnisins & aðalhönnuður: Fabien Chéreau
Höfundur skjala: Matthew Gates
OSX hönnuður: Nigel Kerr
OSX hönnuður: Diego Marcos
Hönnuður: Bogdan Marinov
Hönnuður: Timothy Reaves
Hönnuður: Guillaume Chéreau
Prófun: Barry Gerdes
og allir aðrir í Stellarium samfélaginu.
þýðendur
Stjörnufræðihugtök ofl: Sverrir Guðmundsson
Viðmót og vinnsla: Sveinn í Felli
Ýmsar upplýsingar eru af Stjörnufræðivefnum: http://www.stjornuskodun.is/
Einnig af vef Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness: http://www.astro.is/
Bestu þakkir fær Sævar Helgi Bragason fyrir aðstoðina.
vinir og velunnarar
Stellarium er búið til af forritunarhópnum, með hjálp og stuðningi eftirfarandi aðila

