![]() |
Stjörnuskoðun í Kaldárseli |
[ Prentvæn útgáfa ]
Kaldársel inn af Hafnarfirði er meðal bestu stjörnuskoðunarstaða í næsta nágrenni höfuðborgarinnar. Þaðan er gott útsýni til suðurs en mikil ljósmengun frá byggðinni spillir norðvesturhimninum. Þangað er nokkurra mínútna akstur frá því komið er inn fyrir bæjarmörk Hafnarfjarðar.
Beygið inn Reykjanesbrautina eins og ætlunin sé að fara út á Keflavíkurflugvöll. Þegar komið er framhjá hringtorgi við bensínstöð ESSO og verslunina 10-11 liggur vegurinn upp brekku. Ofarlega í brekkunni er beygt út af í átt að Kaldárseli (nafnið sést á skilti) og ekið yfir brúna á Reykjanesbrautinni.
![]() |
| Kortið sýnir hvar beygt er upp á og yfir brúna á Reykjanesbrautinni í Hafnarfirði. |
Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness - 600279-0339 - Valhúsaskóla v. Skólabraut, 170 Seltjarnarnes - ssfs [hjá] astro.is - mail.astro.is