Námskeið í stjörnuskoðun

16. júní 2009

Sólskoðun 17. júní

Miðvikudaginn 17. júní stendur Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness fyrir sólskoðun á Austurvelli (ef veður leyfir). Skoðunin sjálf hefst lauslega upp úr 13 en nokkrir félagsmenn verða mættir upp úr 12:30 á Austurvöll til setja upp búnað og tjald ásamt borði þar sem við bjóðum blaðið, DVD diska og bækur til sölu til styrktar félagsins og starfsemi þess. Gert er ráð fyrir að skoðun verði fram til kl. 18 eða svo en það fer þó eftir veðri.

Í fyrra komu hátt í þúsund manns en þá voru of fáir til að aðstoða við skoðun. Það er engin krafa gerð um að fólk verði allan tímann en okkur þætti einstaklega vænt um ef félagsmenn gætu hjálpað til í klukkustund eða tvær. Það verða nóg af sjónaukum á staðnum en það þarf fólk til að leiðbeina fólki við skoðun svo og fræða fólk um félagið og starfsemi þess.

Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness - 600279-0339 - Valhúsaskóla v. Skólabraut, 170 Seltjarnarnes - ssfs [hjá] astro.is - postur.astro.is