Námskeið í stjörnuskoðun

13. ágúst 2009

Árgjald, starfsemin í vetur og Galíleóssjónaukinn

Senn líður að upphafi nýs stjörnuskoðunartímabils hjá stjörnuáhugafólki. Áður en lengra er haldið viljum við minna ykkur á greiðslu árgjalds. Félagsmenn geta greitt árgjaldið (2009) í bönkum, sparisjóðum eða heimabanka til 28. ágúst 2009. Þann 1. september 2009 verður sendur út greiðsluseðill til þeirra sem ekki hafa greitt.

Félagsmenn eru hvattir til að ganga frá gjaldinu áður en seðilinn verður sendur út. Tæpur einn þriðji félagsmanna hefur greitt gjaldið nú þegar.

Upplýsingar vegna greiðslu árgjalds:
-Reikningur: 512-26-100017
-Kennitala: 6002790339
-Skýring: ÁG2009
-Upphæð: 2500
-Tölvupóstfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Án árgjalds væri erfitt að standa fyrir þeim fjölmörgu viðburðum sem félagið hefur staðið fyrir að undanförnu svo og útgáfustarfsemi jafnt á prenti og neti.

Á döfinni í vetur

Starfsemi Stjörnuskoðunarfélagsins hefst formlega með fyrsta félagsfundi vetrarins fimmtudaginn 3. september kl. 20:00 í Valhúsaskóla. Dagskrá fundarins verður tilkynnt síðar en sjá má fyrirhugaða dagskrá vetrarins á heimasíðu félagsins undir liðnum dagskrá.

Í vetur er stefnt að því að bjóða áfram upp á námskeið í stjörnufræði og stjörnuskoðun fyrir börn og fullorðna. Í september tekur félagið þátt í Vísindavöku Rannís. Bindum við vonir um að vakan gangi jafnvel og í fyrra.

Dagana 22. til 24. október verður Stjörnuskoðunarfélagið þátttakandi í alþjóðaverkefninu Galíleónætur. Verið er að skipuleggja dagskrá fyrir þessa daga en þegar er ljóst að meira verður um að vera en þegar 100 stjörnufræðistundir fóru fram fyrr á árinu.

Galíleóssjónaukinn

Galíleóssjónaukinn er lítill stjörnusjónauki sem stjarnvísindamenn, stjörnuáhugamenn og raunvísindakennarar hafa útbúið í sameiningu í tilefni af Alþjóðlegu ári stjörnufræðinnar 2009. Pantaðir hafa verið 230 sjónaukar sem færðir verða öllum grunn- og framhaldsskólum landsins að gjöf ásamt námsefni í stjörnufræði sem meðal annars byggist á notkun sjónaukans og fræðslumyndinni Eyes on the Skies.

Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness hefur fest kaup á nokkrum eintökum af sjónaukanum og verður hann boðinn félagsmönnum til kaups á félagsfundum í vetur. Sjá má ítarlega umfjöllun um Galíleóssjónaukann á http://www.stjornuskodun.is/galileosjonaukinn.

Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness - 600279-0339 - Valhúsaskóla v. Skólabraut, 170 Seltjarnarnes - ssfs [hjá] astro.is - postur.astro.is