Námskeið í stjörnuskoðun

31. ágúst 2009

Félagsfundur 3. september 2009

Félagsfundur verður hjá Stjörnuskoðunarfélagi Seltjarnarness fimmtudagskvöldið 3. september næstkomandi. Fundurinn hefst venju samkvæmt klukkan 20:00 í Valhúsaskóla á Seltjarnarnesi. Húsið opnar kl. 19:50.

Á fundinum verður Galíleóssjónaukinn kynntur fyrir félagsmönnum. Dregið verður úr hópi þeirra sem sækja fundinn og fær einn heppinn Galíleóssjónaukann að gjöf. Ennfremur verður fjallað um ljósmyndasýninguna From Earth to the Universe og verkefnið Galíleónætur sem er á dagskrá í október. Að lokum verður komið inn á þátttöku Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness í Vísindavöku Rannís sem fram fer föstudagskvöldið 25. september næstkomandi.

Galíleóssjónaukinn
Galíleóssjónaukinn

Við hvetjum félagsmenn til að fjölmenna á fundinn. Það er fátt skemmtilegra en að spjalla á léttu nótunum um þetta frábæra áhugamál í góðum félagsskap!

Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness - 600279-0339 - Valhúsaskóla v. Skólabraut, 170 Seltjarnarnes - ssfs [hjá] astro.is - postur.astro.is