Námskeið í stjörnuskoðun

09. september 2009

Námskeið í stjörnufræði og stjörnuskoðun

Undanfarin ár hafa Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness og Stjörnufræðivefurinn staðið fyrir námskeiðum um stjörnufræði og stjörnuskoðun. Námskeiðin eru ætluð þeim sem eru að stíga fyrstu skrefin og er boðið upp á fræðslu um áhugaverð fyrirbæri á himninum auk kennslu í grunnatriðum sem tengjast sjónaukum. Skemmst er frá því að segja að námskeiðin hafa hlotið góðar undirtektir og vonandi hjálpað einhverjum af stað við að leggja stund á þetta skemmtilega áhugamál.

Nú í haust er ætlunin að endurtaka leikinn og bjóða upp á byrjendanámskeið 16. til 18. febrúar. Verður það með svipuðu sniði og síðast: blanda af fyrirlestrum og fræðslu um sjónauka. Skráning er hafin og eru nánari upplýsingar á námskeiðasíðunni. Einnig er hægt að skrá sig með að fara beint á skráningarsíðuna.

Skráning hér.
Nánar um námskeið hér.

Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness - 600279-0339 - Valhúsaskóla v. Skólabraut, 170 Seltjarnarnes - ssfs [hjá] astro.is - postur.astro.is