19. október 2009
Félagsfundur verður hjá Stjörnuskoðunarfélagi Seltjarnarness fimmtudagskvöldið 22. október næstkomandi. Fundurinn hefst venju samkvæmt klukkan 20:00 í Valhúsaskóla á Seltjarnarnesi. Húsið opnar kl. 19:50.
Með fundinum hefjast Galíleónætur. Galíleónætur er eitt af meginverkefnum alþjóðlegs árs stjörnufræðinnar þar sem markmiðið er að sýna sem flestum þau undur alheimsins sem Galíleó sá fyrstur manna fyrir 400 árum.
Á fundinum verður örstutt kynning á Galíleónóttum en að henni lokinni verður sýnd mjög fróðleg og áhugaverð heimildamynd um 400 ára sögu stjörnusjónaukans.

Nánari upplýsingar um dagskrá Galíleónátta er að finna á Stjörnufræðivefnum.
Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness - 600279-0339 - Valhúsaskóla v. Skólabraut, 170 Seltjarnarnes - ssfs [hjá] astro.is - postur.astro.is