Námskeið í stjörnuskoðun

11. nóvember 2009

Félagsfundur 15. nóvember 2009

Félagsfundur verður hjá Stjörnuskoðunarfélagi Seltjarnarness sunnudagskvöldið 15. nóvember næstkomandi. Fundurinn hefst venju samkvæmt klukkan 20:00 í Valhúsaskóla á Seltjarnarnesi og opnar húsið opnar kl. 19:50. Á fundinum verða fluttir tveir fyrirlestrar um harla ólík efni.

Í fyrri fyrirlestrinum mun Sævar Helgi Bragason, formaður, fjalla stuttlega um halastjörnur, rannsóknir á þeim og uppruna vatns á jörðinni. Þá mun Ottó Elíasson, nemandi í eðlisfræði við Háskóla Íslands, flytja erindi um svonefnda þyngdargeislun sem almenna afstæðiskenning Alberts Einsteins spáir fyrir um. Fyrirbæri á borð við hvíta dverga, tvístirni, nifteindastjörnur og svarthol senda frá sér þyngdarbylgjur sem bera með sér orku á formi þyngdargeislunar.

Þessi félagsfundur er hinn seinasti sem fram fer á árangursríku ári stjörnufræðinnar 2009. Að venju verður boðið upp á dýrindis kaffiveitingar. Við hvetjum félagsmenn að sjálfsögðu til að fjölmenna á fundinn!

Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness - 600279-0339 - Valhúsaskóla v. Skólabraut, 170 Seltjarnarnes - ssfs [hjá] astro.is - postur.astro.is