Námskeið í stjörnuskoðun

03. janúar 2010

Námskeið í stjörnufræði og stjörnuskoðun í febrúar

Undanfarin ár hafa Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness og Stjörnufræðivefurinn staðið fyrir námskeiðum um stjörnufræði og stjörnuskoðun. Námskeiðin eru ætluð þeim sem eru að stíga fyrstu skrefin og er boðið upp á fræðslu um áhugaverð fyrirbæri á himninum auk kennslu í grunnatriðum sem tengjast sjónaukum. Skemmst er frá því að segja að námskeiðin hafa hlotið góðar undirtektir og vonandi hjálpað einhverjum af stað við að leggja stund á þetta skemmtilega áhugamál.

Nú í febrúar 2010 er ætlunin að endurtaka leikinn og bjóða upp á byrjendanámskeið 16. til 18. febrúar. Verður það með svipuðu sniði og síðast: blanda af fyrirlestrum og fræðslu um sjónauka. Ef þú eignaðist stjörnusjónauka um jólin er þetta námskeið kjörið fyrir þig.

Skráning er hafin og eru nánari upplýsingar á námskeiðasíðunni. Einnig er hægt að skrá sig með að fara beint á skráningarsíðuna.

Skráning hér.
Nánar um námskeið hér.

Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness - 600279-0339 - Valhúsaskóla v. Skólabraut, 170 Seltjarnarnes - ssfs [hjá] astro.is - mail.astro.is