Námskeið í stjörnuskoðun

17. janúar 2010

Félagsfundur 21. janúar 2010

Félagsfundur verður hjá Stjörnuskoðunarfélagi Seltjarnarness fimmtudagskvöldið 21. janúar næstkomandi. Fundurinn hefst venju samkvæmt klukkan 20:00 í Valhúsaskóla á Seltjarnarnesi. Húsið opnar kl. 19:50.

Á fundinum flytur Sverrir Guðmundsson erindi um dvöl sína í Kanada á síðasta ári. Þar starfaði Sverrir við stjörnustöð "Royal Astronomical Society of Canada" í Edmonton sem opin er almenningi. Í erindi sínu ætlar Sverrir að gefa okkur góð ráð um hvernig standa má að stjörnuskoðun fyrir almenning og margt fleira spennandi.

Þetta er fyrsti félagsfundur ársins 2010. Að venju verður boðið upp á dýrindis kaffiveitingar. Við hvetjum félagsmenn að sjálfsögðu til að fjölmenna á fundinn!

Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness - 600279-0339 - Valhúsaskóla v. Skólabraut, 170 Seltjarnarnes - ssfs [hjá] astro.is - mail.astro.is