Námskeið í stjörnuskoðun

01. febrúar 2010

Aðalfundur, árgjald og fundir 2010

Stjórn Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness boðar til aðalfundar fimmtudaginn 11. febrúar klukkan 20:00 í Valhúsaskóla. Húsið opnar kl. 19:50. Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf.

Greiðsluseðlar vegna árgjalds fyrir starfsárið 2010 verða sendir út 3. maí 2010. Félagsmönnum gefst kostur á að greiða árgjaldið í bönkum og sparisjóðum eða heimabanka til 30. apríl 2010. Reikningsnúmer félagsins er 512-26-100017 og kennitala er 600279-0339. Upphæðin er 2.500,- kr.

Fundir á árinu 2010:
-Fimmtudagur 11. febrúar, kl. 20:00 - Aðalfundur.
-Sunnudagur 7. mars, kl. 20:00 - Félagsfundur.
-Fimmtudagur 8. apríl, kl. 20:00 - Félagsfundur. Sævar Helgi Bragason segir frá för sinni til Höfðaborgar í Suður-Afríku.
-Fimmtudagur 17. júní - Sólskoðun í tilefni þjóðhátíðardags Íslendinga.
-Sunnudagur 5. september, kl. 20:00 - Félagsfundur.
-Þriðjudagur 5. október, kl. 20:00 - Félagsfundur.
-Fimmtudagur 4. nóvember, kl. 20:00 - Félagsfundur.
 

Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness - 600279-0339 - Valhúsaskóla v. Skólabraut, 170 Seltjarnarnes - ssfs [hjá] astro.is - postur.astro.is