22. febrúar 2010
Stjörnuskoðunarfélagið og Stjörnufræðivefurinn stóðu fyrir alls konar uppátækjum á safnanótt í Listasafni Reykjavíkur um miðjan febrúar. Óhætt er að segja að viðburðurinn hafi heppnast vel enda komu nokkur hundruð gestir við í sal félagsins. Í vikunni sem leið stóð félagið síðan fyrir námskeiði í stjörnuskoðun fyrir byrjendur. Námskeiðið er það fjölmennasta til þessa (39 manns) en við vonum samt að allir hafi haft gagn og gaman að.
Á Stjörnufræðivefnum er komin inn frétt um safnanótt og byrjendanámskeiðið.
Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness - 600279-0339 - Valhúsaskóla v. Skólabraut, 170 Seltjarnarnes - ssfs [hjá] astro.is - mail.astro.is