25. febrúar 2010
Aðalfundur Stjörnuskoðunarfélagsins var haldinn 11. febrúar síðastliðinn. Um 35 manns sóttu fundinn. Breytingar urðu á stjórn félagsins að því leyti að Kristján Þorvaldsson gekk úr stjórn. Fær hann bestu þakkir fyrir mikið og vel unnið starf í þágu félagsins á undanförnum árum. Nýja stjórn skipa: Sævar Helgi Bragason, formaður, Óskar Torfi Viggósson, gjaldkeri, og Sverrir Guðmundsson, ritari.
Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness - 600279-0339 - Valhúsaskóla v. Skólabraut, 170 Seltjarnarnes - ssfs [hjá] astro.is - mail.astro.is