23. mars 2010
Um helgina fór fram málþing um stjörnufræði í tilefni af alþjóðlegu ári stjörnufræðinnar og vígslu nýs stjörnusjónauka Menntaskólans á Akureyri. Hann hlaut nafnið Stjörnu-Oddi og í kjölfar vígslunnar var stofnað nýtt stjörnuskoðunarfélag á Akureyri sem nefnist Stjörnu-Odda félagið. Við óskum þeim Akureyringum til hamingju með nýja sjónaukann og vonum að hann nýtist bæði til fræðslu og skemmtunar fyrir norðan. Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness hyggst halda félagsfund og stjörnuteiti í samfloti með nýja félaginu í haust og verður nánar sagt frá því þegar nær dregur.
Búið er að setja inn myndir frá málþinginu á Stjörnufræðivefinn.
Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness - 600279-0339 - Valhúsaskóla v. Skólabraut, 170 Seltjarnarnes - ssfs [hjá] astro.is - mail.astro.is