06. maí 2010
Hinn víðkunni stjörnuskoðari Stephen James O'Meara er staddur á Íslandi þessa vikuna til þess að fylgjast með eldgosinu í Eyjafjallajökli. Hann hefur skrifað reglulega í tímaritin Astronomy og Sky & Telescope og varð fyrstur áhugamanna til þess að sjá Halley halastjörnuna þegar hún snéri aftur til jarðar 1985-1986.
Stephen hefur mikinn áhuga á því að hitta áhugafólk í Stjörnuskoðunarfélaginu og verður gestur á opnu húsi í Valhúsaskóla föstudaginn 6. maí. kl. 20:30 (húsið opnar þá). Allir eru boðnir velkomnir!
Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness - 600279-0339 - Valhúsaskóla v. Skólabraut, 170 Seltjarnarnes - ssfs [hjá] astro.is - mail.astro.is