Námskeið í stjörnuskoðun

02. mars 2009

Blað um ár stjörnufræðinnar komið út

Út er komið ritið Undur alheimsins - Alþjóðlegt ár stjörnufræðinnar sem gefið er út af Stjörnuskoðunarfélagi Seltjarnarness í tilefni stjörnufræðiársins. Blaðið er afar veglegt og telur 86 ríkulega myndskreyttar blaðsíður. Mjög er vandað til útgáfunnar og í blaðinu er fjöldi fróðlegra greina um viðfangsefni íslenskra stjarnvísindamanna. Þarna er að finna greinar um Norræna stjörnusjónaukann sem Háskóli Íslands á hlut í, gammablossa sem eru öflugustu sprengingar náttúrunnar, hulduefni og hvernig svonefndar þyngdarlinsur hjálpa okkur að öðlast skilning á því. Einnig eru greinar um ljósmyndun reikistjarnanna, niðurstöður Fönix geimfarsins á Mars og grein um hvernig hægt er að nota íslensk fjöll til þess að læra um Mars. Síðast en ekki síst er heilmikið af upplýsingum um áhugaverð fyrirbæri á stjörnuhimninum sem allir stjörnuáhugamenn geta skoðað með sínum eigin stjörnusjónauka.

Allar greinar blaðsins eru ritaðar á aðgengilegan hátt af okkar fremsta stjarnvísindafólki og ættu því að höfða til víðs hóps áhugafólks um vísindi almennt. Efnistök greinanna og uppsetning blaðsins er í ætt við almenn vísindarit á borð við Scientific American og stjarnvísindatímarit eins og Astronomy og Sky & Telescope. Aldrei áður hefur verið gefið út jafnveglegt blað um stjarnvísindi á Íslandi.

Blaðinu er ætlað að endast út stjörnufræðiárið. Þannig eru til að mynda upplýsingar um stjörnuskoðun nothæfar allt árið og jafnvel næstu ár. Því má segja að blaðið sé að miklu leyti tímalaust. Greinarnar sjálfar munu einnig koma til með að nýtast skólafólki í grunn- og framhaldsskólum sem heimildir í ritgerðir og önnur skólaverkefni.

Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness - 600279-0339 - Valhúsaskóla v. Skólabraut, 170 Seltjarnarnes - ssfs [hjá] astro.is - postur.astro.is