Námskeið í stjörnuskoðun

08. mars 2009

Vel heppnuð krakkanámskeið

Yfir 60 krakkar á aldrinum 5 til 13 ára tóku þátt í fyrsta stjörnufræðinámskeiði stjörnufræðiársins helgina 7. og 8. mars. Námskeiðið fór fram á vegum Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness og Stjörnufræðivefsins í Valhúsaskóla á Seltjarnarnesi. Krakkarnir komu í fylgd með foreldrum sínum sem virtust ekki síður áhugasamir og spenntir. Námskeiðið þótti lukkast afar vel og verður endurtekið á næstunni en mun færri komust að en vildu. Námskeiðið er hluti af þátttöku Íslands í UNAWE verkefninu á alþjóðlegu ári stjörnufræðinnar sem gengur út á að efla vitund yngsta stjörnuáhugafólksins um alheiminn. UNAWE námskeiðin eru haldin út um allan heim.

Á námskeiðinu voru þátttakendur fræddir um undur alheimsins með ýmsum hætti. Þannig lærðu þátttakendur t.d. um myndun árekstragíga á tunglinu með því að láta þunga hluti falla í box fullt af hveiti og kakói. Þegar það gerist myndast gígur og efnisskvettan frá honum allt í kring.

Þegar þungur hlutur er látinn falla ofan í box fullt af hveiti og kakói ofan á myndast gígar líkt og á tunglinu.

Útksýrt var með leikrænum hætti hvers vegna tunglið vex og dvínar á himninum, sem og hvers vegna það snýr ávallt sömu hliðinni í átt að jörðinni. Allir tóku vitaskuld þátt í því. Sett var upp líkan af jörðinni og tunglinu til þess að gefa okkur betri hugmynd um stærðir og fjarlægðir í sólkerfinu.

Kvartilaskipti tunglsins útskýrð á verklegan hátt.

Að lokum var fjallað um Vetrarbrautina okkar, árekstur hennar við Andrómeduvetrarbrautina og svartholið sem leynist í miðju hennar. Spurningunni „Hvað gerist ef maður dettur ofan í svarthol?“ var svarað með góðri hjálp frá Hómer Simpson.

Rúsínan í pylsuendanum er svo að sjálfsögðu stjörnuskoðunarkvöldið þar sem krakkarnir og foreldrar þeirra koma með eigin sjónauka (ef þau eiga, annars fá þau að horfa hjá öðrum).

Í eina kvöldstund breytast þá 60 íslenskir krakkar í litla Galíleó Galileí sem uppgötva undur alheimsins með eigin stjörnusjónauka. Foreldrar þeirra líka.

Fréttastofa Sjónvarps ræðir við þátttakendur námskeiðsins. Mynd: Óskar Torfi Viggósson.

Fleiri myndir frá Óskari Torfa Viggóssyni er að finna í myndasafni Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness. Nánari upplýsingar um námskeið á næstunni er að finna á síðu námskeiða.

Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness - 600279-0339 - Valhúsaskóla v. Skólabraut, 170 Seltjarnarnes - ssfs [hjá] astro.is - postur.astro.is