25. mars 2009
Elvar Karl Bjarkason, nemi í eðlisfræði, sótti opnunarhátíð Alþjóðlegs árs stjörnufræðinnar. Hún fór fram í höfuðstöðvum UNESCO í París, dagana 15. og 16. janúar. Elvar Karl sagði frá ferð sinni í máli og myndum en ríflega 1000 einstaklingar frá yfir 100 löndum sóttu opnunina.
Elvar Karl var í hópi um 100 heppinna nemenda sem var boðið á opnunina. Meðal þeirra sem héldu erindi á hátíðinni voru Robert Wilson, en hann uppgötvaði örbylgjukliðinn árið 1965 ásamt félaga sínum Arno Penzias. Elvar Karl hlýddi einnig á erindi Jocelyn Bell en hún tók þátt í metnaðarfullri smíði útvarpsloftnets árið 1965 sem leiddi til uppgötvunar tifstjarna 1967. Erindi Elvars var hið fróðlegasta og var gaman að hann hafi fært okkur nær opnun alþjóðaársins með þessum hætti. Elvar Karl fær bestu þakkir fyrir.
Mythbusters hafa getið sér nokkra frægð fyrir skemmtilega þætti á Discovery sjónvarpsstöðinni, en þar taka þeir fyrir flökkusögur og reyna að sýna fram á (ó)trúverðugleika þeirra. Þeir Jamie og Adam í Mythbusters fóru rækilega í gegnum samsæriskenningar sem sprottið hafa upp í kringum tungllendingarnar. Þeir notuðu líkan af tunglflaug til að sýna fram á að skuggar geta leynt á sér og endurkast ljóss á tunglinu er töluvert meira en á jörðinni. Þeir fóru yfir fleiri atriði og meðal annars fengu þeir aðstoð frá NASA til að gera tilraun í lofttæmi. Skemmtilegur þáttur og var það mál manna að ærslabelgirnir hafi blásið þessar samsæriskenningar af borðinu í eitt skipti fyrir öll.
Næsti fundur er fimmtudaginn 2. apríl 2009 kl. 20:00 í Valhúsaskóla. Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna enda hefjast þá 100 stjörnufræðistundir.
Lesa má fundargerðina hér.
Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness - 600279-0339 - Valhúsaskóla v. Skólabraut, 170 Seltjarnarnes - ssfs [hjá] astro.is - postur.astro.is