Námskeið í stjörnuskoðun

31. mars 2009

Félagsfundur 2. apríl 2009

Félagsfundur verður hjá Stjörnuskoðunarfélagi Seltjarnarness fimmtudagskvöldið 2. apríl næstkomandi. Fundurinn hefst venju samkvæmt klukkan 20:00 og fer fram í Valhúsaskóla á Seltjarnarnesi. Húsið opnar kl. 19:50. Á fundinum verður verkefnið 100 stundir af stjörnufræði, sem er stærsta vísindamiðlunarverkefni allra tíma, formlega sett.

Verkefnið er hluti af Alþjóðlegu ári stjörnufræðinnar 2009. Áætlað er að yfir ein milljón manna í yfir 130 löndum muni á einhvern hátt koma nálægt þessu viðamikla verkefni. Á fundinum verða þeir viðburðir sem félagið efnir til kynntir rækilega.

Að lokinni kynningu viðburða verkefnisins verður sýndur fyrsti þátturinn í sjónvarpsþáttaröðinni goðsagnakenndu Cosmos. Hefst þá formlega Cosmos-maraþon sem standa mun yfir fram á sunnudagskvöldið 5. apríl.

Við hvetjum að sjálfsögðu félagsmenn til að fjölmenna á fundinn. Það er fátt skemmtilegra en að spjalla á léttu nótunum um þetta frábæra áhugamál í góðum félagsskap!

Nánari upplýsingar um 100 stundir af stjörnufræði er að finna hér.

 

 

Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness - 600279-0339 - Valhúsaskóla v. Skólabraut, 170 Seltjarnarnes - ssfs [hjá] astro.is - postur.astro.is