Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness/11. febrúar 2010
Dagsetning: 11. febrúar 2010 kl. 20:10.
Fundarstaður: matsalur nemenda í Valhúsaskóla.
Þátttakendur: félagsmenn í Stjörnuskoðunarfélagi Seltjarnarness - um 35 manns mættu.
a. Sævar Helgi Bragason, formaður, bauð fundargesti velkomna og setti aðalfund 2010. Tillaga kom fram um Guðna G. Sigurðsson sem fundarstjóra og Kristján Þorvaldsson sem fundarritara. Var það samþykkt samhljóða.
b. Sævar Helgi Bragason, formaður, flutti skýrslu stjórnar fyrir starfsárið 2009. Árið var einkar viðburðaríkt enda félagið þátttakandi í Alþjóðlegu ári stjörnufræðinnar. Aðalfundur 2009 var haldinn í janúar. Fyrirlestraröð tengd árinu var haldin á vetrar- og vormánuðum og afar vel sótt. Í mars var mjög velheppnað krakkanámskeið. Í apríl fóru fram 100 stundir af stjörnufræði. Í tengslum við þær var sólkerfisrölt og Cosmos maraþon. Á 17. júní var fyrirhuguð sólskoðun en félagsmenn þurfti frá að hverfa vegna veðuraðstæðna á Austurvelli. Í lok sumars var alþjóðlegur sumarskóli og skemmtilegir fyrirlestar í tengslum við hann. Var félagið með sölu á þeim viðburði og gekk afar vel. Í ágúst var sett upp sýningin From Earth to the Universe á Skólavörðuholti. Í september var fyrsti félagsfundur 2009-2010. Galíleónætur voru í október. Meðal annarra atburða á árinu voru 3 námskeið, stjörnuskoðun fyrir almenning í febrúar, 5 skólaheimsóknir upp í turn ásamt því að félagið tók þátt á Vísindavöku Rannís.
Skýrslan var samþykkt samhljóma án athugasemda.
c. Kristján Þorvaldsson, gjaldkeri, fór yfir ársreikning félagsins fyrir 2009 bæði rekstrarhluta og efnahagshluta. Kristján nefndi að auknu aðhaldi hafi verið gætt á árinu. Sala varnings af ýmsum toga var góð ásamt því að námskeiðin hafi skilað sínu. Stóraukning var í innheimtu félagsgjalda. Helsti útgjaldaliðurinn var útgáfa á veglegu blaði í tilefni af Alþjóðlegu ári stjörnufræðinnar. Niðurstaða rekstrar fyrir 2009 var 1.038.063,- kr. í hagnað. Hvað varðar efnahagshluta þá var niðurstaðan var 4.317.126,- kr.
Kristján talaði um að hægt væri að spara enn frekar í rekstri félagsins. Hann nefndi að hverfa ætti frá því að senda fundarboð vegna aðalfunda og hafa frekar samband beint við þá sem eru ekki með virkt netfang. Fundarmenn tóku vel í það. Almenn ánæga var með niðurstöðuna.
Ársreikningurinn var samþykktur samhljóma.
d. Guðni G. Sigurðsson, fundarstjóri, bar upp tillögu stjórnar um óbreytt árgjald fyrir starfsárið 2011 eða 2.500,- kr. Kristján Þorvaldsson, gjaldkeri, talaði um að skynsamlegt væri að halda óbreyttu gjaldi í ljósi efnahagsþrenginga. Sverrir Guðmundsson studdi þá tillögu. Fundarmenn samþykktu óbreytt árgjald samhljóma.
e. Sævar Helgi Bragason, formaður, nefndi að starfsnefnd um framtíðaraðstöðu hefði ekki starfað á árinu í ljósi efnahagsþrenginga.
f. Sævar Helgi Bragason, formaður, gaf kost á sér til áframhaldandi setu. Engir aðrir voru í framboði. Sævar var því kjörinn formaður félagsins. Kristján Þorvaldsson, gjaldkeri, gaf ekki kost á sér til áframhaldandi setu. Óskar Torfi Viggósson, ritari, gaf kost á sér sem gjaldkeri og var kjörinn nýr gjaldkeri félagsins. Sverrir Guðmundsson gaf kost á sér í embætti ritara. Nýja stjórn skipa: Sævar Helgi Bragason, formaður, Óskar Torfi Viggósson, gjaldkeri, og Sverrir Guðmundsson, ritari.
Guðni G. Sigurðsson, fundarstjóri, þakkaði Kristjáni Þorvaldssyni fyrir gott starf í þágu félagsins. Sævar Helgi Bragason, formaður, þakkaði Kristjáni fyrir gott starf. Fundarmenn gáfu Kristjáni gott klapp fyrir vel unnin störf í þágu félagsins.
g. Tillaga kom fram sem Guðna G. Sigurðsson sem skoðunarmann reikninga. Var það samþykkt samhljóma.
h. Engin ný starfsnefnd var skipuð að þessu sinni.
i. Engar breytingar á starfsreglum komu fram.
j. Önnur mál
Fundi var slitið klukkan 21:20.
Fyrir hönd stjórnar Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness,
Kristján Þorvaldsson.
Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness - 600279-0339 - Valhúsaskóla v. Skólabraut, 170 Seltjarnarnes - ssfs [hjá] astro.is - mail.astro.is