Óskar Torfi Viggósson/21. janúar 2010
Dagsetning: 21. janúar 2010.
Fundarstaður: skólastofa í Valhúsaskóla.
Þátttakendur: félagsmenn félagsmenn í Stjörnuskoðunarfélagi Seltjarnarness -ríflega 30 félagar mættu.
1. Sverrir Guðmundsson sagði frá dvöl sinni hjá Royal Astronomical Society of Canada. Hann dvaldi í Edmonton, heimabæ RASC, frá miðju sumri 2009 fram á haustmánuði. Sverrir fór yfir daglegt starf í stöðinni en hún er ekki ósvipuð þeirri hugmynd sem uppi er varðandi aðstöðu okkur í Krýsuvík. Þarna koma áhugamenn um stjörnuskoðun í þúsundavís ár hvert. Er óhætt að segja að reynsla hans eigi eftir að nýtast SSFS einstaklega vel við hönnun framtíðaraðstöðunnar. Mæting á þennan fund var afburðargóð, en ríflega húsfyllir var á fundinum, sem tókst frábærlega í alla staði.
Engin fleiri mál lágu fyrir. Fundi var slitið klukkan 22:00.
Fyrir hönd stjórnar Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness,
Óskar Torfi Viggósson, ritari.
Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness - 600279-0339 - Valhúsaskóla v. Skólabraut, 170 Seltjarnarnes - ssfs [hjá] astro.is - mail.astro.is